enter Corporation - Home
 
 
Fyrirtækið Vörur Viðskiptavinir Birgjar Þjónustusíða
Um Enter
Starfsmenn
 
 
 
 
 

Enter ehf
Klettahrauni 3
220 Hafnarfirði

Kt. 6812002230
Banki: 0526 26 1165
vsk. nr. 71334

UM ENTER

Enter ehf. var stofnað í nóvember árið 2000, í þeim tilgangi að veita fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum ráðgjöf í öryggismálum tölvukerfa. Enter vinnur í nánu samstarfi við afar virt félög á sviði gagnaöryggis og vírusvarna, Norman Data Defense og Sybari Software. Báðir þessir samstarfsaðilar hafa unnið til fjölmargra viðurkenninga og getið sér gott orðhjá helstu stofnunum heims á sviði öryggismála.

Helstu verkefni Enter felast í ráðgjöf, uppsetningu, sölu og þjónustu við vírusvarnarkerfi fyrir póstkerfi, útstöðvar og netþjóna fyrirtækja.

Enter hefur á að skipa þrautreyndum starfsmönnum, með margra ára menntun og reynslu úr tölvuheiminum.


 

 

Markmið: Að gera mögulegt að tryggja rekstraröryggi tölvukerfa fyrirtækja, stofnana og heimila á hagkvæman hátt í samvinnu við fremstu fyrirtæki heims á sviði gagnaöryggis.

Framtíðarsýn: Að sýna frumkvæði og hafa ávallt á boðstólnum hagkvæmar lausnir, tryggja viðeigandi þjónustustig og vera viðskiptavinum sem fyrsti valkostur við ráðgjöf og val á nýjum hugbúnaðarlausnum.